X5 X-Ray leitartæki frá LOMA.
LOMA hefur í 20 ár þróað og hannað X-Ray Skynjunartæki. Við kynnum hér X5 línuna sem er nýjasta gerð LOMA X-Ray tækja.
LOMA tækin hafa verið í notkun með sérlega góðum árangri í áratugi og eru viðurkennd af helstu verslanakeðjum í heimi, sem besti kostur.
Örugg - Áreiðanleg - Notendavæn
Þetta nýja X5 tæki LOMA getur meðal annars skynjað:
- Alla málma
jafnvel þegar vara er í álumbúðum eða með álfilmu.
- Ýmis glerefni
- Ýmis plastefni
- Ýmis steinefni
- Ýmis bein
- Ýmis gúmmíefni
Auk þess getur LOMA X5 einnig fundið:
- Hluti sem vantar í vöru/pakkningu
- Skemmda og/eða aflagaða vöru/pakkningu
Sjálfvirk röntgenmynd (X-Ray) í nýja LOMA X5 tækinu, les inn í minni upplýsingar um vöruna og stillir tækið eins vel og kostur er, fyrir hverja vöru, algjörlega sjálfvirkt.
X5 Skynjunartækið frá LOMA fæst í 3 gerðum:
- X5C Compact X-Ray Inspection
Sérhannað fyrir smærri pakkningar.
- X5 Spacesaver X-Ray Inspection
Hannað fyrir vinnslulínu, fæst með frístandandi frátaki (reject-system).
- X5 Pack X-Ray Inspection
Fyrir stærri vinnslulínur og stærri pakkningar.